Frá Jökulsárlóni í vestri að Hornafjarðarfljóti í austri
Veiðisvæði 9 nær frá Jökulsárlóni í vestri að Hornafjarðarfljóti í austri. Svæðið einkennist af skriðjöklum, bröttum fjallgörðum og dölum þeirra á milli. Á svæði 9 er mikilvægt að hafa fæturna í góðu standi. Vissulega finnast veiðisvæði á lágsléttum, má þar nefna Breiðamerkursand og Heinabergssand en megnið af veiðinni fer fram í bröttu fjallendi.
Náttúran er stórbrotin og einhvernvegin fær maður hana beint í fangið á þessu svæði. Skörun skriðjökla og hárra, brattra fjalla stoppar mann gjarnan á göngu. Það þarf stundum að taka einn auka andadrátt, hreinlega til þess að meðtaka útsýnið.
Nánar um svæðamörk má sjá í kortasjá Náttúruverndarstofnunar.
Veiðitímabil
Þjónusta á svæðinu
Mikið er um bændagistingu við þjóðveginn. Verslun og sundlaug á Höfn í Hornafirði.
Ekkert eldsneyti er að fá milli Fagurhólsmýrar og Hafnar í Hornafirði.
Við bjóðum upp á leiðsögn á svæðinu allt veiðitímabilið 2026. Setjum saman ferðir eftir samkomulagi.
Hafa samband
Frá Hornafjarðarfljóti í vestri að hreppamörkum Hornafjarðar og Múlaþings í austri
Veiðisvæði 8 nær frá Hornafjarðarfljóti í vestri að hreppamörkum Hornafjarðar og Múlaþings í austri. Svæðið er sá hluti Hornafjarðar sem áður var Bæjarhreppur og Nesjahreppur (Lón og Nes). Brött fjöll, stórir dalir og straumvötn. Náttúruperlur á borð við Lón og Lónsöræfi þar fyrir innan. Þjónusta er sótt á Höfn. Talsverð aukning á veiðikvóta 2026 og sérstakar nóvemberveiðar á kúm heimilar.
Nánar um svæðamörk má sjá í kortasjá Náttúruverndarstofnunar.
Verslun og sundlaug á Höfn í Hornafirði. Á Höfn er eina eldsneytið á svæði 8.
Við bjóðum upp á leiðsögn á svæðinu allt veiðitímabilið 2026. Setjum saman ferðir eftir samkomulagi.
Hafa samband
Frá Hreppamörkum Hornafjarðar og Múlaþings að Langatanga austan Berufjarðar
Veiðisvæði 7 nær frá Hreppamörkum Hornafjarðar og Múlaþings við Hlaupageira að Langatanga austan Berufjarðar, þar sem það mætir svæði 6. Svæðið er sá hluti Múlaþings sem áður var Djúpavogshreppur. Svæði 7 mætir svo svæði 2 innan við Þrándarjökul.
Nánar um svæðamörk má sjá í kortasjá Náttúruverndarstofnunar.
Verslun og eldsneyti er að finna á Djúpavogi.
Við bjóðum upp á leiðsögn á svæðinu allt veiðitímabilið 2026. Setjum saman ferðir eftir samkomulagi.
Hafa samband